Sjúkrafóður fyrir ketti með þvagsteina/kristalla sem eru í ofþyngd eða eiga á hættu að þyngjast
Leysir upp strúvít kristalla Hjálpar til við að leysa upp allar tegundir strúvít kristalla ásamt því að þynna út þvagið, sem dregur úr kristallamyndun.
Lægra magn jóna Fóðrið hjálpar til við að draga úr magni jóna í þvaginu sem eiga þátt í myndun kristalla.
Hitaeiningasnauðara Inniheldur færri hitaeiningar sem stuðlar að heilbrigðari líkamsþyngd.
Notkun Gegn strúvít kristöllum, til upplausnar strúvít þvagsteina og til að fyrirbyggja frekari myndun þeirra. Einnig gegn endurtekinni myndun kalsíum oxalat kristalla.
Næringargildi Fóðrið inniheldur 34,0% prótein, 11,0% fitu, 7,0% trefjar, 1% kalk, 0,9% fosfór, 1,2% natríum, 2,14% klóríð, 1% kalíum, 0,06% magnesíum, 0,7% súlfur. Samtals tárín: 0,22%. Þvagsýrandi efni: kalsíum súlfat 1,3% og DL-methionín 0,43%. EPA og DHA: 0,32%. L-karnitín: 200 mg/kg.
Aukaleiðbeiningar Ráðlagt er að fylgjast reglulega með þvagi, þar á meðal pH-gildi, meðan fóðrið er notað til að tryggja að pH verði ekki of hátt, þar sem það getur verið einstaklingsbundið.
